komin tími á aðra blogg færslu.

'I ár er 2009.

Og það eru 20 ár síðan við útskrifuðumst frá Gagnfræða skóla Siglufjarðar.  Ekki veit ég þó hvort einhver komi hingað inn en þá eða ekki.  En alla vega er ekki tími á að við hittumst í sumar??

Hverjir eru til í það????

kv.

Maríanna


Hátíð.

Elsku bekkjarsystkini.

Ég óska ykkur öllum og ykkar fjölskyldu, gleðileg jól og farsælt komandi ár.  Hlakka til að sjá ykkur, þegar þið komið í heimsókn hingað til mín á Hawaii.  'I dag er jóladagur og það er 26 stiga hiti úti.  Og ég er á leiðinni á ströndina. 

Ég sakna þó snjósins og að hafa kuldan í kringum mig á  þessum tíma.

Hafið það gott.

Ykkar Maríanna í sólinni.


Gleðileg Jól

Sendi ykkur öllum bestu óskir um Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Takk fyrir góðar stundir á árinu! Sjáumst hress Happy

Jólakveðjur

KSA & Co.


Pálmasunnudagur 12.apríl 1987

Ég fer ca. einu sinni á ári innst inn í kompu hjá mér og það gerðist líka þetta árið. Fór reyndar innar en vanalega og hvað fann ég....? kassa með gömlum bókum og þar á milli var sálmabókin mín sem ég eignaðist '87. En það sem var enn merkilegra við þennan fund er það að inni í sálmabókinni var bæklingur frá fermingunni okkar! Ég skannaði hann inn og nú er hann komin inn undir myndir.

kv.

KSA


helgin.

Flottar myndir.  Eru til fleiri?

mig langaði alveg rosalega mikið til að vera með ykkur, verður bara næst.  En hver verður fyrstur til að segja mér meira frá helginni!  hlakka til að heyra frá ykkur hvernig var.

Maríanna í ameríku.


Myndir

Ég gafst upp á að reyna að koma inn myndunum hér á síðunni svo ég skellti þeim inn á síðuna mína.

Slóðin er: http://www.123.is/snillingur/default.aspx?page=albums 

Svo set ég kvöldið í kvöld inn á morgun :)

Þangað til.......


Takk fyrir mig.

Halló halló allir saman.

Ég vill fyrst og fremst þakka fyrir að hafa fengið bréf um hitting :-) alltaf svo gaman af svona hlutum.  En hey Kata ég var búin að senda þér e-mail ( fékkstu það ekki?) og láta þig vita að því miður þá kemst ég ekki á þennan hitting, ég hef verið mikið að hugsa þetta, en þar sem við erum að fara flytja og eiginmaðurinn alveg að koma heim, þá bara sé ég mér ekki fært um að fljúga heim til ísland. 

En ég held áfram að borga í sjóðinn okkar til að einhver peningur verði til 2009 :-) hey eitthvað smátt getur gert eitthvað stórt.

En alla vega þið takið fullt af myndum og leifið mér audda að skoða.  Borðið fyrir mig, svamlið svo í pottinum og njótið menningunar í síldarminnjarsafninu ( hef aldrei komið þangað inn ) og vonandi fáið þið ykkur smá síld og meðlæti.

Annars bið ég æðislega vel að heilsa ykkur öllum sem komið norður, eða kíkkið inn. 

En hvar eru allir hinir?

kv frá Californiu.

Maríanna Leósdóttir Cowell


DAGSKRÁIN

LAUGARDAGUR:
KL.
10:00     Morgunverður á Hvanneyri.
12:00     Göngutúr/Sund.
14:00     Seinn hádegisverður á Hvanneyri.
15:00     Síldarminjasafn Íslands - Menningin í fyrirrúmi :)
17:00     Laus tími. Ræðum það í morgunverðinum.
20:00     Kvöldverður á Pizza 67. - Valið af matseðli.
23:00     Allinn - Hljómsveitin Napoleon á Allanum fyrir þau sem vilja halda áfram.
 


Skráningin hafin...

Þá er skráningin byrjuð að detta inn og þau ykkar sem ætla ekki að missa af 20 ára hittingi eru:
Gísli
Eiki
Bragi
Örvar
Jóhann Valberg
Katrín Sif
Hanna
Daði
Hilmar Elefsen
Hulda
Jói Steinars


Þau sem hafa afboðað eru:
Barbara.
Sonja í DK.
Fríða.
Siggi er að fara í brúðkaup en vonandi lítur hann á okkur.

Þau sem ég hef bara ekkert heyrt frá:

Magnús
Bára
Jón Pálmi
Maja
Gotti
Rúnar
Sonja Diago
Ásþór
Anna María
Óli Þórir
Linda María
Halla
Atli
Rakel Anna
Óskar
Hlöðver
Sigga

Ég mun svo uppfæra eftir bestu getu! en ef enn eru óskráðir aðilar þá bið ég ykkur um að skrá ykkur hið fyrsta.

Kv.
KSA


Bréf í vinnslu....

Sæl, þá eru adressurnar komnar, búin að fá frá Maríönnu, og þá fer nú bara að fæðast bréf til ykkar til að senda í bréf pósti.

Munið svo að skrá ykkur fyrir 18.ágúst og greiða gjöldin ykkar líka!

Bestu kveðjur

KSA


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband